27.04.2012 20:00
Skoðuðum svolítin hring
Eddi Kr og Danni, Keyrðum svakalegann hring Sumardaginn fyrsta með vinum okkar í Björgunarsveitinni Kyndli úr Mosfellsbæ þar sem við byrjuðum á að keyra upp á Reyphólsfjöll og hálfa leið út á Skálanes enn frekar lítil snjór svo langt út á nesið, enn við forum út á Kollafjarðarheiði og svo upp að Glámu gömlu og þaðan út á Dynjandisheiði og keyrðum langleiðina að Flókalund enn þá var Danni að verða tæpur á benzínunu svo við fórum heim þann daginn og búnir að keyra ca 315Km er með helling af myndum sem ég tók og einnig frá Bent
Elli, Börkur Villa, Gæi, Hrólfur fóru af Steingrímsfjarðarheiði og keyrðu á Glámu og eitthvað meira meira um það síðar
16.04.2012 22:45
Fórum Flotta Helgaferð Í Reykjafjörð N
Eddi Kr,Elli,Gauti,Gunni Kalli,og gestinir Róbert,Jón Orri,Stebbi,Orri fórum af stað frá Hólmavík rétt í kringum 20:15 komum við með varahluti fyrir Þórð á Laugalandi og lögðum á stað frá Kaldalóni ca 22:00 í svolítri þoku komum í Reykjafjörð ca 23:30 fengum okkur smá næringu og kíktum í laugina
Laugardaginn byrjuðum á að tanka og svo kíktum við í Hrafnsfjörð og rétt aðeins á upp á Hyrnukjöl svoldið mikill þoka svo við fórum aðeins niður í Bolungarvík og svo bara aftur í heim í Reykjafjörðinn holusteiktum 2 afturdrif með öllu tilheirandi svakalega gott slökuðum okkur svo í laugina til að ná okkur niður allveg frábært
Sunnudagurinn keyrðum í þoku upp alla Fossadalsheiðina og stukkum svo uppúr henni við Hrolleifsborgina inn í ein tóma Sól og Gelði LOKSINS hehe griluðum okkur hádegismat þar og tókkum smá æfingar á meðan madurinn eldaðist tókum svo strikið út eftir Snæfjallaströndini og langleiðina í Grunnavík eða þar fyrir ofan fundum svakalega skemtilegar brekkur á leiðinni kíktum smá í þær og mynduðum allt Ísafjarðardjúpið Vigur, Hestinn, Súðavík, Ísafjörð, Hnýfsdal, Bolungavík, Bolafjall,og auðvita alla Jökulfyrðina keirðum svo aftur í Kaldalón svo heim og Takk fyrir komuna Strákar Frábær helgi að baki
p.s. nokkrar nýjar myndir og á eftir að setja nokkrar í við bót
- 1
