Flettingar í dag: 429
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 1571
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 65852
Samtals gestir: 7341
Tölur uppfærðar: 5.4.2025 19:57:26
clockhere

Tenglar

22.03.2009 20:18

Fórum í Reykjafjörð.

Við Skyttan fórum norður í Reykjafjörð í dag. Hrólfur fór með okkur að jöklinum, en snéri við þar. Við fórum upp að Hrolleifsborg og þaðan niður fyrir norðan Reykjafjörðinn. Á leiðinni niður af jöklinum er slatti af sprungum, þannig að það er vissara að fara varlega þar. Þegar við vorum á neðsta hjallanum niðri í Reykjafirði var steinn í felum rétt undir yfirborðinu (þónokkur sólbráð) og ég keyrði á hann og flaug fram fyrir sleðann sem lá óvígur eftir. Þannig að bognar stýfur og dempari og brotnir boltar, fóðringar, gler og handahlíf var það sem ég fékk út úr þessu. Við Skyttan tvímenntum þá á crossfirenum til bæjar og náðu með fólskubrögðum að nálgast bolta, rær og ryðgaðan steyputein til að geta gert sleðann "ökufæran" aftur. Þannig að allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.


En annars var þetta mjög góð ferð. Snjórinn full harður á köflum, en annars gott færi. Nóg af snjó ennþá fyrir norðan til að fara niður í firðina.

Myndir í albúmi.
Flettingar í dag: 429
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 1571
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 65852
Samtals gestir: 7341
Tölur uppfærðar: 5.4.2025 19:57:26
eXTReMe Tracker