11.04.2009 22:41
Laugardagurinn

Við vorum allir þreyttir í dag, En þá skellir maður sér á sleða, og allt hverfur.
Þeir Aggi,Elli,Atli,Veigar,Siggi fóru uppá Kálfanes í dag og þaðan í Ósdalinn. Það var mjög snjóblynt þarna uppfrá. Eftir að Ósdalurinn var búinn fórum við uppað kálfatjörn og ofan í Þiðriksvallardal á vatnið. Það er ekki til hengja þarna uppfrá sem ekki er sprungin eftir okkur.
Flottur leikdagur sem endaði vel, samt eitt mjög skrítið við þennan dag. Jú við vorum á sleðunum í 4 tíma og Atli velti ekki, hann fær hrós fyrir það. Reyndar klikkaði ekkert í þessari ferð og engin bylta. Mjög skrítið
Myndir komnar inná albúm
Skrifað af Agga
Flettingar í dag: 137
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 104
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 120981
Samtals gestir: 11819
Tölur uppfærðar: 4.7.2025 05:11:37