Flettingar í dag: 188
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 1392
Gestir í gær: 313
Samtals flettingar: 63113
Samtals gestir: 7073
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 09:56:06
clockhere

Tenglar

06.12.2009 17:16

Fundember


Gott og vel.


Núna fer að styttast í Jólafrí hjá okkur, og væntanlega verður þetta frí hjá flestum eins og hin síðustu, sleðast út í eitt. En það er ekki það eina sem við Tröllin ætlum að gera nú um Jólin. Nei nú verður fundur hjá okkur. Þess vegna VERÐA MENN AÐ SEGJA HVENAR ÞEIM HENTAR BEST AÐ MÆTA  svo reynum við að finna góðan tíma. Ef menn vilja halda þessum klúbbi áfram og gera eitthvað að viti þá MÆTA menn og koma sínum hugmyndum áfram. Ég nenni ekki að hlusta á einhverjar athugasemdir og eitthvað rugl í mönnum eftir fund sem komu ekki á hann. Við finnum góðan tíma  og þeir sem ætla taka þátt í að gera þennan klúbb enn betri mæta, þeir hinir sem komast ekki verða bara að sætta sig við það sem verður ákveðið eða stofna sér annan klúbb
( held að "123.is/fúllámóti" sé laust )

En allavega þá eru nokkrir dagar sem koma til greina þeir eru 25-26-27 eða 31-1 jan.

Svo er mjög gott að ef menn eru með einhverjar hugmyndir hvernig við getum bætt/breytt/bogið/beyglað Tröllin, þá er um að gera að skrifa það niður og koma með þá hugmynd á fundinn. Verum nú líflegir og gerum en betur en síðustu vetur

30.11.2009 17:22

Það Er Bullandi Hagstætt Veður

nú er bullandi skafreninngur og það mokast niður snjórinn og færið er að snar lagast til að sleðast!!!

myndinn er tekin milli stríða í dag 30.11.09 mynda vélin er vitlaust stilt

29.11.2009 20:52

Tókum smá hring

Kíktum til að svala mesta þostanum Atli,Bjarki og Eddi Kr
Færið er mjög lélegt niður í bæ, það er hægt að þræða soldið,  það er komið soldið upp á Steingrímsfjarðarheiði og Arnkötlu dal

29.11.2009 13:55

Til Gamans Smá Fróðleiku

Smá Fróðleikur;
 
myndband sem sýnir hvernig maður tekur kúplingarnar af og þrífur eða skiftir um gorm

klikka hér

27.11.2009 21:10

Hvað er málið.


Hvað er málið.


Afhverju erum við svona spenntir yfir einhverju færibandi. Jú það kemst hratt og getur klifið hátt en hver er ástæðan. Hér ætla ég að kryfja þetta niður að mínu mati, og set þetta í þá röð sem mér finnst skipta mestu máli. Mönnum er aðsjálfsögðu frjálst að bæta
inní þennan texta í comment-inu en kíkjum á þetta.

Kostir:
Frelsið (Ef ég vill fara til hægri þá tek ég hægri beygju eins með vinstri ( annað en bílar þá fylgir maður tjöru eða slóða))
Náttúran: sem fylgir auðvitað frelsinu, en þarf ég að segja eitthvað meira. Við verðum að átta okkur á því að við búum við ótrúlega gríðarlega náttúrufegurð, sem alltof fáir átta sig á og búa alla ævi á mölinni.
Félagskapurinn: Það er fátt jafn skemtilegt eins og að fara í góða ferð með bestu vinum sínum í góðu veðri.
Spenna: (Adrenalín) Hvaða sleðamaður þekkir það ekki að vera klífa einhverja brekku og í miðri brekku hugsar maður "fokk ég næ þessu ekki en ég læt samt reyna á þetta"
Lyktin: Fokkings sleðalykt, því í andskotanum hefur engum dottið það í hug að tappa þessari lykt á flösku. Ég tek tvær.

Gallar
Kostnaður: Fokk dýr tæki, Fokk dýrt bensín,  (dragiði úr öðrum kostnaðarliði)
Kuldi. Jú kalt en hættiði þessari nísku og kaupiði ykkur almennilegan búning, ef ekki prjóniði ykkur þá hlýjan fatnað.
UUUUU.

Maður lifir bara einu sinni afhverju þá ekki að lifa þetta líf lifandi, afhverju að hanga bakvið tölvuskjá og lyklaborð, eins og ég er að gera akkurat núna, Hættum þessu bulli og skellum okkur á bak.
One life live it.




p.s ég er sem stendur sleðalaus en það er bara millibilsástand og er einungis tímabundið dökt tímabil í mínu lífi



21.11.2009 18:26

STÓRGLÆSILEG SÝNING HJÁ STORMI

STRANDATRÖLLIN ÞAKKA STARFSFÓLKI STORMS FYRIR GLÆSILEGA SÝNINGU.


20.11.2009 16:39

Ótitlað



Þetta er sorgardagur. Villikötturinn hefur fengið nýtt heimili. Crossfireinn minn verður framvegis í góðum höndum á Akureyri, Þessi dagur verður merktur sem svartur dagur hér eftir og bið ég þá sem lesa þetta að gefa 1 mínótu í þögn í virðingaskyni.

En allavegana þar sem ég er orðin sleðalaus, Þá færist ég í frystinn eins og Tröllalög gera ráð fyrir, og verð þar þanngað til að storkurinn skilur eftir körfu með nýjum sleða við hurðina, Vonum bara að hann drullist til að flýta sér. Ég mun aðsjálfsögðu halda síðunni uppi áfram og blása til sóknar ef eitthvað er.

En s.s nú hefst leitin að nýjum sleða,  og fyrsta stopp er Stormur með 2010 Pollana (aldrei),



p.s Hef ákveðið að stofna nýjan hóp. SSA  SnowSledAnonymous til að koma okkur yfir versta hjallan, þeir sem hafa áhuga á þeim hóp skulu kvitta hér að neðan.

17.11.2009 22:12

Hækkanir á sleðatryggingum

Ég heyrði fyrir nokkru að Tryggingafyrirtækin væru að fara hækka tryggingar allverulega, en spáði ekkert mikið í það, þanngað til ég fékk nýjasta seðilinn. Ég myndi ekki kalla þetta hækkun í mínu tilviki heldur GRÍÐARLEGA hækkun. þess má geta að ég trygði þá hjá Verði. En allavegana eftir að ég fékk þessa blautu tusku í andlitið (má samt eginlega segja að tuskan hafi verið bleytt svo fryst og þá smelt framan í mig) ákvað ég að leggjast í rannsóknarblaðamennsku og krefjast skýringar á þessum hækkunum hjá tryggingarfélögunum. Mér til mikillar gleði komst ég af því að aðeins eitt tryggingarfyrirtæki hefði breytt reglum sínum varðandi sleðatryggingar. Hin félögin hyggja ekki á breytingar þennan veturinn fyrir utan þær hækkanir vegna vísitöluhækkana, sem er s.s skiljanlegt vegna hærra verðs á innkeyptum varahlutum þegar þeir bæta tjón.

En allavegana ég sett mig í samband við Valdemar í Verði og vil ég þakka honum fyrir að svara öllum mínum spurningum og leyfa mér að birta svar hans hér.

Hér er ástæða þess að Vörður hefur hækkað tryggingar.

Sæll vertu


Það er rétt að við höfum verið að senda út hækkanir á tiltekna vélsleða. Ástæða þess er sú að við vissum að afkoma vélsleðatrygginga væri algerlega afleit. Tjónahlutfall vélsleða hjá okkur undanfarin 7 ár er vel yfir 200%. Við krufum þetta til mergjar og niðurstaða þeirrar skoðunar var að það var gríðarsterk fylgni milli afls sleða og tjóna. 85% tjóna hjá okkur er valdið af sleðum sem eru yfir 120 hestöfl og 10 stærstu vélsleðatjónum okkar á þessu tímabili er öllum valdið af sleðum 120+ hestöfl.

Við komumst að þeirri niðurstöðu að til þess að tryggingar á þessa kraftmiklu sleða stæðu undir sér þyrfti árlegt iðgjald þeirra að vera yfir 300.000 kr. Í flestum tilfellum vorum við hinsvegar að taka iðgjald á bilinu 40-50.000 ! Það eru ekki góð viðskipti og þýðir eingöngu að aðrir vátryggingatakar eru að greiða niður vátryggingar þessara tækja og það er bara ekki sanngjarnt.

Af hverju þessi fylgni milli tjóna og afls sleðana er svona sterk er kannski spurning sem vélsleðamenn geta best svarað. Tjónamunstur vélsleða er í eðli sínu þannig að það er tiltölulega lítil tíðni svo að ekki er óeðlilegt að menn keyri tjónlausir árum saman. En ef eitthvað gerist þá eru það yfirleitt alvarleg, kostnaðarsöm örorkutjón og nær undantekningalaust er sleðinn sem slíkt hendir á yfir 120 hestöfl.

Ákvörðun var tekin um að eitthvað yrði að gera. Niðurstaðan er sú að við förum handvirkt yfir alla vélsleða við hverja endurnýjun og flettum þeim upp í ökutækjaskrá. Sorterum út sleða yfir 120 hestöfl og hækkum iðgjald þeirra. Aðra sleða látum við alveg vera. Þetta er í sjálfu sér það sama og við gerum þegar mótorhjól eru verðlögð en þar er samskonar vandamál í gangi að 160 hestafla racer mótorhjól er mikið meiri áhætta en 80 hestafla hippi og við verðleggjum þau öðruvísi.

Vélsleðamennska er skemmtilegt sport og margir vélsleðamenn eru mjög góðir viðskiptamenn okkar. En ofangreindar tölur tala sínu máli og við getum ekki látið þetta aðgerðalaust. Hinn möguleikinn var að hækka alla sleða 40-50% (sem væri reyndar ekki nærri nóg) en við töldum ekki sanngjarnt að gera það þegar við vitum hvar vandamálið liggur og er alveg afmarkað.

Ég vona að þið skiljið þessi sjónarmið okkar og vandamálið sem blasti við.

Með kveðju,
Valdemar


Ég svar honum því að mér fyndist það frekar ósanngjarnt að meirihlutin af sleðamönnum ætti að "þrífa skítinn eftir hina slóðana" Því lang stærsti hópurinn af sleðamönnum keyra þessi tæki eðlilega og hafa ekki lent í tjóni í mörg ár og hvort ekki væri hægt að hækka iðgjöld á svörtu sauðina um 200-300 þús eins og hann talar um og hafa þá einhvern gagnagrunn á milli tryggingafyrirtækja þar sem menn færu bara á svartan lista svo þeir gætu ekki hoppað á milli eftir tjón.
Einnig sagði ég honum að ég myndi skilja vanda þeirra, en væri alls ekki sammála þeim hvernig þeir ætla að tækla vandamálið.

Valdemar svarar.
Sæll vertu

Við getum verið þér alveg sammála að vitanlega eru það oft svörtu sauðirnir eru að skemma fyrir þeim sem fara reglulega varlega. Vandamálið snýr að því að við getum ekki vitað á málefnalegan máta hverjir svörtu sauðirnir eru og reyndar er spurning hvort að vandamálið séu "svartir sauðir" yfirhöfuð. Eins og ég minntist á er tjónamunstur vélsleða þannig að tjónasaga segir lítið sem ekkert. Í tilfelli bíla þá sjáum við oft munstur, t.d. ef menn lenda í 2-3 smáóhöppum á ári er það vísbending um að akstur sé ekki í lagi. Vélsleðatjón á hinn bóginn eru dálítið "allt eða ekkert". Tjónin á vélsleðum eru slysatjón þar sem tilviljun getur ráðið hvort menn meiði sig eitthvað eða lítillega og engin tjónskrafa er gerð, eða þá veruleg meiðsl verða með tugmilljónkróna örorkukröfu.

Þess vegna, hversu ósanngjarnt sem það kann að virðast, eigum við bara einn málefnalegan faktor fyrir spádóm í því á hvaða vélsleða búast má við þungum tjónakröfum og það er afl sleðanna. Við reyndum að finna aðra málefnalega faktora, t.d. aldur ökumanna og búsetusvæði en gátum ekki fundið fylgni við þá faktora. Þeir sem lentu í alvarlegum slysum voru yfirleitt fullorðnir menn á besta aldri, góða viðskiptasögu og allt annað í fínu lagi. Þessi slys virðast því koma dálítið úr heiðskíru lofti.

Ég get látið það fylgja í framhjáhlaupi að tjónatíðni kraftmikilla sleða virðist jafnvel vera meiri en öflugustu mótorhjóla. Kannski á það rót að rekja til aðstæðna á fjöllum þar sem getur verið blinda og einnig að vélsleðar eru yfirleitt þyngri tæki sem geta valdið miklu líkamstjóni ef þeir lenda ofan á ökumanni sínum við fall.
 



Já bara til að bæta einu við þá hækkuðu tryggingar af mínum sleða um 100%. Þeir gera engan greinamuna á mönnum með góða sögu eða þeim sem eru sífelt að tjóna eða "týna" sleðunum sínum.

Ég spyr, hvað getum við gert í þessu, því oft er það raunin að þegar eitt fyrirtæki tekur af skarið fylgja hin, er þetta ekki eitthvað sem við verðum að reyna breyta, þá er ég ekki að meina að fara með potta og pönnur til þeirra heldur að haga okkur eðlilega og stíga á félaga okkar þegar stefnir í óefni.

Hvað finnst ykkur.


14.11.2009 13:42

Að byrja

Jæja kappar. Nú styttist í að við förum að komast fyrir alvöru á bak og gamanið byrjar. Það er samt ýmislegt hægt að gera til að hita sig upp, skoða myndir hér af þessari síðu, gera sleðana klára og svo er það Sleðamessan sem verður haldin á morgun í Sporthúsinu í kópavogi. s.s 15 nóv, hvet alla þá sem eru í bænum að kíkja á þetta enda margt mjög athugavert þarna á ferð. set hérna auglýsinguna frá þeim þannig að menn sjái svona sirka hvað verður um að vera þarna á morgun. Einnig er hægt að sjá meira um þetta hér http://sporthusid.is/index.php?option=content&task=view&id=46&Itemid=70


31.10.2009 13:07

STRANDATRÖLLIN

Hvernig lýst ykkur á að byrja að skipuleggja fer á T.D 'Olafsfjörð  Akureyri eða dalvík.
við þurfum að skipuleggja það í tíma til að fá bústað-i
og jafnvel að kanna hvort einhverjir sleða klúbbar myndu vilja koma í sameiginlega ferð



03.10.2009 18:01

ER ALLT AÐ VERÐA VITLAUST!!!!!!!!!!!!!

TRÖLLIN Halda Ótrauð ÁFRAM

Tókum gott RÖNN í dag

28.09.2009 22:10

BYRJAÐIR !!!!!!!

STRANDATRÖLLIN ERU BYRJUÐ



HEIÐIN TEKIN MEÐ TRUKKI OG DÝFU

VETURINN ER BYRJAÐUR
VEI VEI VEI VEI VEI VEI

OG AÐ SJÁLFSÖGÐU VAR ÞAÐ POLARIS
SEM RUDDI FYRIR KOMANDI VETRI

22.09.2009 19:04

Jæja nú fara hlutinir að gerast

Strandatröllin verða öflug í vetur, það var að berast tilboð í 1 gám frá usa. Við fáum 12 nýja sleða
árg 2010, já sleðarnir verða með algjörlega öllu.
Svona sleðar nema bara svartir með sérsprautað strandatrölla lógói beint frá verksmiðu,
GERI aðrir betur

17.08.2009 23:22

að koma

Jæja Tröll, núna fer að styttast í fyrsta kornið og er ekki um að gera að fara spá aðeins í það hvenar og hvar sé best að halda þennan fund. Þetta er held ég í þriðja skiptið sem við ætlum að reyna halda þennan fund, það hefur alltaf klikkað útaf mis góðum ástæðum. En það er um að gera að hittast fá sér einn til tvo kalda og skipuleggja komandi vetur. það er þónokkuð sem á eftir að ákveða fyrir þennan vetur. En endilega komiði með tillögur um þetta mál.





MBK, Aggi M

13.07.2009 00:58

Sumarfrí

Eins og flestir hafa séð þá eru Strandatröllin í frí og verða þar til fyrsta snjókorn fellur á Strandirnar. Sem ég held að verða 1 sept, Þannig að það verður lítið um nýjar færslur eða nýtt dót hér inni.

Þó finnast alltaf einhverjar nýjar myndir, og sjálfsögðu verða þeim hent inn.

Þótt það sé sumar þá eru Tröllin ekki alveg dauð, á góðum dögum köstum við okkur stundum á vötnin og aldrei að vita nema það komi inn einhver myndskeið af því á næstunni.

En næsta mál sem er á skrá er ekki fyrr en í haust, þegar við ætlum að halda fund. Sá fundur verður aðallega haldin til að fara yfir ýmsar hugmyndir, og skipuleggja næsta snjóþungavetur. Planið var að halda þennan fund um Hamingjudagana en af ýmsum ástæðum ( aðallega þynnku ) mætti enginn á þann fund ( ekki einu sinni ég ).  Næsti fundur verður þó vel auglýstur þannig að sem flestir ættu að geta mætt.





MBK, Aggi M
Flettingar í dag: 188
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 1392
Gestir í gær: 313
Samtals flettingar: 63113
Samtals gestir: 7073
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 09:56:06
eXTReMe Tracker