Flettingar í dag: 1244
Gestir í dag: 49
Flettingar í gær: 125
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 61530
Samtals gestir: 6727
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 23:23:40
clockhere

Tenglar

20.03.2025 16:36

Nokkrir Prófaðir um helgina og borguð síðan

aðeins Prófaður Nýji Articat 600 154" 2025 Stórskemtilegur sleði

 

 

01.12.2020 12:54

Veturinn 2020/2021

Hugleiðingar!!!
Og svona byrjar Sleða árið 2020/2021  með kyningum á Sleðum eða nei það er kóvit svo við verðum bara að skella okkur í Net kynningu Svona eru þær !

Stormur= Polaris Stormur

Arctic Trucks= Yamaha Arctictrucks

Erlingsen = BPR Lynx&Skidoo Ellingsen

Arctic Sport = Arctic Cat Arcticsport

28.01.2020 23:28

Kíkt á Kálfanes fjallið og Bleiksdal

Renni Færi út úr skúr og upp um allt




10.01.2020 14:41

Skoðað færið

Eddi kr Fór smá skoðun upp á Kálvanesfjall og Ósdal

smelti nokkrum myndum og setti í Albúm

það verður vel hægt að leika þegar veður leifir



09.01.2020 15:28

Nýtt Sleða Ár THX

það er búið að sigra kálfanesbrekkuna þennan veturinn það var gert um Jólin til að senda og mynda Gleððilegt Nýtt Sleða ár og þakka fyrir það gamla.



þeir Kristján Guðmunds og Eddi Kr Fóru í heimsókn um liðnahelgi 4/5 janúar 2020 í Djúpavík og könnuðu snjóalög og aðstæður á fjöllum það var mjög gott færi og fulltaf snjó á leiðinni til Djúpavík mikil skafrenningur Enn það gekk samt vel



Og svo í dag 9 jan er að Snjóa vel og það skefur það er vestan átt og kemur skima inn á milli
svo við sjáum að það er að koma flottur snjór í leiksvæðin í kring


18.10.2019 11:07

Síðan Vonandi Vöknuð Af Dvalanum

það er búið að vera allt allt of lítil virkni í þessari síðu og vonandi verður það betra í vetur leifi einni mynd að fljóta með


17.11.2015 23:50

Þetta Verður Spennandi Vetur

Postur Frá

Sleðaferðir á Ströndum og Hótel Djúpavík og við Strandatröllin með í ráðum


Erum að setja saman pakka fyrir ákveðnar dagsetningar. Byrjum á fjórum ferðum. Hótelið er skipt í þrjú hús. Hótelið (8 tveggja manna herbergi) Álfasteinn ( 2 tveggja manna - 1 þriggja manna - 1 eins manns) og svo Lækjarkot ( 2 fjögra manna (kojur)). Þeir sem panta fyrstir geta valið sér herbergi en svo mætir restin afgangi. Þurfum líklega að fylla öll rúm þar sem eftirspurnin virðist mikil. Hámarksfjöldi er 32-36 manns í hverja ferð. Þetta eru þær dagsetningar sem við höfum ...í huga.

Ferð 1 - 5. mars (ein gistinótt)
Ferð 2 - 19. mars (ein gisinótt) Stormur/polaris verða með þessa ferð.
Ferð 3 - 2. apríl (ein gisitnótt)
Ferð 4 - 15. apríl (tvær gistnætur)

Frekari upplýsingar um hverja ferð koma fljótlega.

16.11.2015 02:21

Vaknaðir eftir dvala

Kominn tími til að eitthvað gerist hérna á síðuni enda mart búið að ske Eddi Kr búinn að borga síðuna og þeir bræður búnir að endur nýja í flotonum svo umm munar en fer betur i það i næsta pistli og set til gamans myndir inn þá


05.01.2013 00:32

Siðann mætt til leiks.

Jæja Gleðilegt ár kæru Tröll og ekki Tröll,


Það væri gaman ef einhverjir gætu nú hent inn myndum af ferðum sínum síðustu vikur og mánuði til að sýna þeim hinum sem ekki hafa farið Norður nýlega hversu gott sleðafæri er búið að vera heima.
Veit reyndar ekki hvernig það er þarna núna en þegar ég (Aggi) var milli Jóla og nýárs á Hólmavík þá  var þar á fimtudeginum 27 des 50-60 cm hátt púður, eitthvað sem sést nú ekki oft þarna.

Einnig vill ég líka benda á að við erum komnir með yfir 100,000 heimsóknir á þessa sleða/myndasíðu okkar. jú ekki gleyma að vera virkir á Trölla-facebook síðunni..



MBK

Aggi

20.05.2012 19:56

Bara Urðum Að Nota Góða Veðrið !!!

fórum þrír að leika í snjónum á Steingrímsfjarðaheiði nó af snjó mikil sólbráð og skemtilegt færi gerðum smá æfingar og náðum að mynda eitthvað af þeim enn þegar leikar fóru að æsast dó myndavélin eins og alltaf "Classic" áttum bara skemtilegan dag






Enn að öðru  er ekki kominn tími að stútera vetrinum eða  setja upp eitt Tröllaslútt eins og við höfum oftast gert hvað finst ykkur ??? Mér finst að við þurfum að halda í þessa skemtilegu hefð!!!



Matur að hefjast


Verið að seigja eina eftirmynilega sögu


27.04.2012 20:00

Skoðuðum svolítin hring

Eddi Kr og Danni, Keyrðum svakalegann hring Sumardaginn fyrsta með vinum okkar í Björgunarsveitinni Kyndli úr Mosfellsbæ þar sem við byrjuðum á að keyra upp á Reyphólsfjöll og hálfa leið út á Skálanes enn frekar lítil snjór svo langt út á nesið, enn við forum út á Kollafjarðarheiði og svo upp að Glámu gömlu og þaðan út á Dynjandisheiði og keyrðum langleiðina að Flókalund enn þá var Danni að verða tæpur á benzínunu svo við fórum heim þann daginn og búnir að keyra ca 315Km er með helling af myndum sem ég tók og einnig frá Bent


 

Elli, Börkur Villa, Gæi, Hrólfur fóru af Steingrímsfjarðarheiði og keyrðu á Glámu og eitthvað meira meira um það síðar


16.04.2012 22:45

Fórum Flotta Helgaferð Í Reykjafjörð N

Eddi Kr,Elli,Gauti,Gunni Kalli,og gestinir Róbert,Jón Orri,Stebbi,Orri fórum af stað frá Hólmavík rétt í kringum 20:15 komum við með varahluti fyrir Þórð á Laugalandi og lögðum á stað frá Kaldalóni ca 22:00 í svolítri þoku komum í Reykjafjörð ca 23:30 fengum okkur smá næringu og kíktum í laugina


Laugardaginn byrjuðum á að tanka og svo kíktum við í Hrafnsfjörð og rétt aðeins á upp á Hyrnukjöl svoldið mikill þoka svo við fórum aðeins niður í Bolungarvík og svo bara aftur í heim í Reykjafjörðinn holusteiktum 2 afturdrif með öllu tilheirandi svakalega gott slökuðum okkur svo í laugina til að ná okkur niður allveg frábært


Sunnudagurinn  keyrðum í þoku upp alla Fossadalsheiðina og stukkum svo uppúr henni við Hrolleifsborgina inn í ein tóma Sól og Gelði LOKSINS hehe griluðum okkur hádegismat þar og tókkum smá æfingar á meðan madurinn eldaðist tókum svo strikið út eftir Snæfjallaströndini og langleiðina í Grunnavík eða þar fyrir ofan fundum svakalega skemtilegar brekkur á leiðinni kíktum smá í þær og mynduðum allt Ísafjarðardjúpið Vigur, Hestinn, Súðavík, Ísafjörð, Hnýfsdal,  Bolungavík, Bolafjall,og auðvita alla Jökulfyrðina keirðum svo aftur í Kaldalón svo heim og Takk fyrir komuna Strákar Frábær helgi að baki   

p.s. nokkrar nýjar myndir og á eftir að setja nokkrar í við bót 

13.03.2012 21:32

þröskuldar

komnar nokkrar myndir

13.03.2012 14:42

Aðeins tekið á því

Strákarnir Kristján Páll, Börkur Villa og Bjarki Einars Tóku létt flipp, vipp í gær smá byltur og stökk bara Gaman hjá þeim


 

svo eru nokkrar myndir í viðbót

09.03.2012 02:40

Könnunar Leiðangur

Svona var á standið á Steingrímsfjarðarheiði þann 06/03 2012"





 


 

Flettingar í dag: 1244
Gestir í dag: 49
Flettingar í gær: 125
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 61530
Samtals gestir: 6727
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 23:23:40
eXTReMe Tracker